Fréttir

Atendi hefur sölu á Skaarhoj stýringum og búnaði

Skaarhoj ApS er danskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í sérsniðnum stýringum fyrir útsendingar og lifandi viðburði. Stýringarnar styðja tæki frá flestum framleiðendum á markaðinum og ein Skaarhoj stýring getur stýrt mörgum tækjum í einu, sett upp nákvæmlega eins og hentar fyrir hvern viðburð fyrir sig.

Fyrirtækið var stofnað af Kasper Skårhøjalong árið 2012, þegar hann hóf hönnun, framleiðslu og sölu heiman frá sér. Síðan þá hefur fyrirtækið stækkað þónokkuð og er nú með starfsemi í Danmörku, Austurríki, Póllandi, Úkraínu og Bandaríkjunum. Tækin eru þó hönnuð og framleidd áfram í Danmörku.

Við höfum sett nokkrar vörur í vefverslunina. Fleiri vörur koma inn fljótlega.