Algengar spurningar

Spurt og svarað 


Hér söfnum við svörum og lausnum að algengustu spurningum og tæknivandamálum viðskiptavina okkar. Eins og er þá er þetta ansi tómlegt, við erum rétt að byrja.

Á vinstri hönd sjáið þið lista yfir þau tæki og umræðuefni sem við höfum skrifað um. Einnig getiði notað leitina uppi í vinstra horni.

Ef þið finnið ekki lausnina að ykkar vandamáli, endilega hafið samband.


Seljið þið til einstaklinga? 

Atendi einbeitir sér að fyrirtækjamarkaði, svo við erum ekki í því að taka að okkur uppsetningu og þjónustu á kerfum í einstaklingseigu. Að því sögðu þá er öllum frjálst að panta hjá okkur í vefversluninni og við afgreiðum með bros á vör. 😊

Eruð þið með verslun þar sem hægt er að skoða, sjá og heyra? 

Við erum einungis með vefverslun, lager og skrifstofu. Vörur sem pantaðar eru í vefversluninni eru afhentar í lagerhúsnæði okkar á Lambhagavegi 13. Fyrir stærri verkefni er best að senda inn tilboðsbeiðni og við bókum fund í kjölfarið þar sem möguleiki er að fá demo ef búnaðurinn er til á lager hjá okkur. 

Hvað er opið lengi hjá ykkur? 

Við erum með opið frá 9:00 til 17:00 á virkum dögum. Það kemur þó fyrir að við erum allir út í bæ að vinna. Best er að hringja á undan sér. 

Hvar eruð þið til húsa? 

Við erum í Grafarholti, rétt hjá Bauhaus. Heimilisfangið er Lambhagavegur 13, 113 Rvk. 
Sjá á Google korti


Atendi.is